tfi-logo_400x100
   
Aðalfundur TFÍ 2010 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Miðvikudagur, 17. mars 2010 14:48

Aðalfundur TFÍ var haldinn s.l. föstudagskvöld.  Efni fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf.  Óvenjugóð mæting á fundinn, sýnir það mikla samheldni félagsmanna.

Formaður TFÍ rakti í skýslu sinni m.a. gang kjarasamningagerðar, en samningar voru felldir í atkvæðagreiðslu um mitt ár.  Ekkert hefur gengið í samningaviðræðum við SNR.  Fyrsta ár tollvarða undir sameiginlegri yfirstjórn er nú að baki.  Hafa tollverðir mátt sjá á bak miklum tekjum auk þess sem fækkun hefur orðið í stéttinni. 

Tveir einstaklingar eru með kærumál hjá Umboðsmanni Alþingis og er niðurstöðu að vænta á næstunni.  Auk þess hefur félagið lagt fram stefnu í Félagsdómi vegna ágreinings um orlofs vegna bakvaktavinnu.

Formaður ræddi einnig hugsanlegar breytingar á orlofshúsamálum, og var samþykkt á fundinum að halda áfram athugun á hugsanlegri sölu á Úthlíð með kaup á nýjum bústað í huga. Fyrirhuguð er formleg opnun Tollminjasafns á 75 ára afmæli félagsins 8. des. n.k. Einnig var fjallað um þá fundi er stjórnarmenn  sóttu í Finnlandi og Brussel.

 

 
 dsc_8646  dsc_8638  dsc_8641
 2010-03-12_aalfundur_tf_2010_09  2010-03-12_aalfundur_tf_2010_12  2010-03-12_aalfundur_tf_2010_10
 dsc_8656  dsc_8682  2010-03-12_aalfundur_tf_2010_16