tfi-logo_400x100
   
Félagsfundur TFÍ
Föstudagur, 09. apríl 2010 17:09
Félagsfundur TFÍ var haldin í dag 09.04.2010 að Tryggvagötu 19 í FORD salnum.
Efni fundarins var kauptilboð sem hafði borist í orlofshús félagsins í Úthlíð í Biskupstungum. Eftir að formaður hafði kynnt kauptilboðið og eftir umræður í framhaldi af því var kosið um söluna á bústaðnum.

Sala orlofshússins var samþykkt með 19 atkvæðum gegn 1.

Jafnframt var ákveðið að setja á laggirnar þriggja manna nefnd sem myndi athuga þá kosti sem í boði eru varðandi nýtt orlofshús.

Með kveðju

Stjórn TFÍ

 
Félagsfundur
Fimmtudagur, 08. apríl 2010 18:09
Haldinn verður félagsfundur TFÍ á morgun í FORD salnum að Tryggvagötu 19, Föstudaginn 09.04.2010 og mun fundurinn hefjast kl. 12:10
Fundarefni:
Kauptilboð í orlofshús félagsins í Úthlíð.
Kveðja
Stjórn TFÍ
 
Aðalfundur TFÍ 2010
Miðvikudagur, 17. mars 2010 14:48

Aðalfundur TFÍ var haldinn s.l. föstudagskvöld.  Efni fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf.  Óvenjugóð mæting á fundinn, sýnir það mikla samheldni félagsmanna.

Nánar...
 
Aðalfundur
Mánudagur, 08. mars 2010 11:28

Aðalfundur TFÍ verður haldinn 12. mars 2010 í Húsnæði BSRB grettisgötu 89, Reykjavík.

Nánar...
 
Aðalfundur TFÍ 2010
Miðvikudagur, 03. febrúar 2010 09:27

Aðalfundur Tollvarðafélags Íslands verður haldinn föstudaginn 12. mars kl. 18:00.  Fundurinn verður að Grettisgötu 89, 1. hæð.

Dagskrá fundarins verðar almenn aðalfundarstörf.  Léttar veitingar verða í fundarhléi.

 

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 2 af 11