tfi-logo_400x100
   
Mál TFÍ til félagsdóms?
Mánudagur, 22. september 2008 22:45
Með kjarasamningum TFÍ frá 2005 tók gildi ákvæði er tiltók allt að 80 klst. frí til þeirra tollvarða er gegna bakvöktum.  Hefur ákvæðið verið framkvæmt á flestum vinnustöðum tollvarða án nokkura vandkvæða.  Hinsvegar hefur eitt embætti á landsbyggðinni ákveðið að uppfyllla ekki þetta ákvæði.  Hefur stjórn TFÍ leitað liðsinnis BSRB í þessu máli.  Á þessum tímapunkti er allt útlit fyrir að málið fari fyrir Félagsdóm.   
 
Beiðni um aukagreiðslu hafnað af ríkinu í þriðja sinn
Föstudagur, 20. júní 2008 17:11

Það er einkennilegur tónn, sem fjáramálráðuneytið sendir sínum tollvörðum á sama tíma og tollgæslan landar stærsta fíkniefnamáli Íslandssögunnar, en að auki má minna á afburða árangur tollgæslunnar í heild undanfarin ár. Í lok maí þessa árs óskaði stjórn Tollvarðafélags Íslands í þriðja skipti eftir aukagreiðslum, sambærilegum þeim greiðslum, sem lögreglan hefur þegið um langan tíma, og getið er um í kjarasamningum beggja félaga. Þegar í stað eftir að lögreglan hafði fengið greiðslurnar samþykktar, óskaði stjórn Tollvarðafélagsins eftir sömu greiðslum og sendi með beiðninni ítarlegan rökstuðning máli sínu til stuðnings. Stjórn félagsins ítrekaði síðan kröfu sína á fundi við fjármálaráðherra síðastliðinn vetur, en hefur þráfaldlega verið synjað um erindið. Nú virðist því vera ljóst að enginn vilji er hjá stjórnvöldum að nota þessi ákvæði kjarasamningsins, þrátt fyrir að líklega hafi þessi aldrei verið meira þörf undanfarin 10-15 ár og má það í raun furðu sæta. Þetta eru stjórn félagsins í senn gífurleg vonbrigði, en jafnframt hvatning til að standa enn fastar á kröfum okkar næsta haust. Tollverðir standa nú einir löggæslustétta án nokkurra bóta, en samningar fangavarða voru teknir upp á miðju samningstímabili og samið við þá af miklum  myndarskap. Lögreglumenn hlutu, sem fyrr segir, sínar greiðslur síðastliðið haust. 

Tollverðir hljóta að spyrja hvort, hvort litið er á okkur sem þriðja flokks löggæslumenn þrátt fyrir þann frábæra árangur, sem við sýnum?Ekki er óeðlilegt að tollverðir spyrji sig einnig þeirrar spurningar, til hvers slíkar greiðslur séu settar í kjarasamning, þegar augljóst er að enginn vilji var nokkurn tíma hjá ríkinu að nýta þær í okkar tilfelli. Brýnt er að endurskoða í næstu samningum slík ákvæði og hvort ekki sé hægt að setja varnagla við þá. Augljóslega lítur ráðuneytið á ákvæðin sem  orðin tóm og þá þarf að grípa til annarra ráðstafana.

 

með kveðju,

Guðbjörn Guðbjörnsson formaður  
 
Nýjung í orlofsmálum
Miðvikudagur, 23. apríl 2008 15:44

Í sumar mun TFÍ bjóða félagsmönnum sínum upp á kaup á gistimiðum á Eddu hótelum og Lykilhótelum.  Alls er um að ræða 27 hótel vítt og breytt um landið.  Mun hver miði gilda sem gisting í tveggja manna herbergi.  Sjá miðahafar sjálfir um bókun á hótelum og skal þá taka fram að greitt sé fyrir gistinguna með gistimiðum.  Verð á miða á Eddu hótel er kr. 4500.-, en á Lykilhótel kostar miðinn kr. 5000.-  Hver félagsmaður getur að hámarki keypt 10 miða.  Miðarnir verða til sölu í Tollmiðstöð og á Keflavíkurflugvelli.  Gert er ráð fyrir að greitt sé inn á reikning TFÍ: 0101-26-109270 kt. 670274-0639, síðan framvísi félagsmaður kvittun fyrir innborgun í banka eða heimabanka gegn afhendinu miða.

 

Félagsmenn verða upplýstir síðar um nánari tilhögun.  Gert er ráð fyrir að sala gistimiða hefjist frá og með 13. maí n.k.

 

Upplýsingar um hótelin má finna á www.hoteledda.is  og http://www.fosshotel.is/is/index.php

 

 
Aðalfundur TFÍ
Þriðjudagur, 11. mars 2008 15:33

Aðalfundur TFÍ verður haldinn föstudaginn 14. mars n.k. að Grettisgötu 89, á 1. hæð í húsi BSRB.  Hefst hann kl. 18:00. 

Á dagskrá fundarins eru venjuleg aðalfundarstörf. 

Léttar veitingar verða í fundarhléi.

 

 

 
40 ára afmæli Tollskóla ríkisins
Þriðjudagur, 20. nóvember 2007 11:05

Í tilefni af 40 ára afmæli Tollskóla ríkisins verður haldin veisla að Iðusölum í Lækjargötu.  Einnig verður árgangur 2007 útskrifaður úr skólanum.  Tollstjórinn í Reykjavík vill bjóða fyrrverandi nemendum og starfsmönnum ásamt öllum velunnurum skólans að gera sér þann heiður að vera viðstaddir útskriftina og halda upp á afmælið.  Boðið verður upp á léttar veitingar. 

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til starfsmannasviðs tollstjórans í Reykjavík í síma 5600379/5600352 eða á póstfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.   ekki seinna en miðvikudaginn 12. desember nk.

Staður: Iðusalir, Lækjargötu 2a, 101 Reykjavík

Dags: þriðjudagur 18. desember 2007

Tími: 17:00 – 19:00

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 10 af 11