tfi-logo_400x100
   
Annar fundur samninganefndar TFÍ
Þriðjudagur, 28. október 2008 17:25

Boðað hefur verið til annars samningafundar á morgun miðvikudaginn 29. okt.    

 
Fyrsti samningafundur.
Fimmtudagur, 23. október 2008 13:22
Boðað hefur verið til fyrsta samningafundar með TFÍ og samninganefnd ríkisins.  Verður hann haldinn mánudaginn 27. október n.k.   Nú fyrst átta dögum áður en núverandi kjarasamningur rennur út boðar samninganefnd ríkisins til fundar, eftir ítrekaðar beiðnir félagsins. 
 
Félagsfundur TFÍ
Mánudagur, 06. október 2008 17:58

2008-10-02_flagsfundur_tf_3Fimmtudaginn 2. október var haldinn félagsfundur TFÍ og hófst hann kl. 18:00.  Kveikjan að þessum fundi eru fyrirhugaðar breytingar á tollalögum sem geir það að verkum að landið verði gert að einu tollumdæmi.  Á fundinn mættu um 40 tollverðir sem teljast verður mjög góð þáttaka. 

Mikil umræða fór fram um þessar fyrirhuguðu breytingar.  Í lok fundarins var samþykkt svohljóðandi ályktun: ,,Félagsfundur TFÍ haldinn 2. október 2008 tekur mjög jákvætt í hugmyndir um að tollgæslan verði sameinuð undir einni stjórn, sé sú breyting til bóta fyrir félagsmenn og tollgæsluna á Íslandi og gerð í samráði við félagsmenn."   Var ályktunin samþykkt einróma.
    2008-10-02_flagsfundur_tf_4 2008-10-02_flagsfundur_tf_22008-10-02_flagsfundur_tf_1

 
Jóhann sæmdur gullmerki Tollvarðafélagsins
Þriðjudagur, 30. september 2008 15:28

Jóhann R. Benediktsson, fráfarandi lögreglusstjóri á Suðurnesjum, var í gær sæmdur Gullmerki Tollvarðafélags Íslands. Síðasti vinnudagur Jóhanns hjá embættinu er í dag.

 

johann_gullmerki.jpgSamstarfsfólk Jóhanns hjá Tollinum kvaddi Jóhann við þetta tækifæri í gær. „Við skiljum og virðum þá ákvörðun Jóhanns að hafa beðist lausnar frá embætti, þótt við séum engan veginn sátt við þau málalok,“ sagði Guðbjörn Guðbjörnsson, formaður Tollvarðafélagsins í ræðu sem hann flutti er hann veitti Jóhanni Gullmerkið.
„Margir voru hissa í vor þegar allir starfsmenn embættisins stóðu að baki Jóhanni R. Benediktsyni sem um einn mann væri að ræða. Þetta fólk vissi auðsjáanlega ekki að þegar rétti einstaklingurinn fer fyrir hópi fólks á réttum tímapunkti er alltaf hægt að treysta á að viðkomandi fylgi leiðtoganum, hvað sem það kostar og hvert sem haldið er...Jóhann hefur leitast eftir að gera það besta fyrir þá sem hann hefur þjónað: íslensku þjóðina og starfsmenn lögreglu- og tollstjórans á Suðurnesjum og af þeim sökum sæmum við hann Gullmerki Tollvarðafélags Íslands,“ sagði Guðbjörn ennfremur í ræðu sinni.

 

 
Félagsfundur TFÍ
Föstudagur, 26. september 2008 18:00

Haldinn verður félagsfundur TFÍ fimmtudaginn 2. okt. n.k. á 1. hæð Tollhússins við Tryggvagötu og hefst hann kl. 18:00.  Á dagskrá fundarins verður rætt um hugsanlegar breytingu á skipulagsmálum tollgæslunnar.

Það hefur komið fram hjá stjórnsýslunni að vilji er til að öll tollgæsla verði sameinuð undir einni stjórn.  Á fundi sýslumanna er fram fór á Hvolfsvelli í gær kom fram einhugur um stofnun eins tollaumdæmis í landinu.

Er það von stjórnar TFÍ að sem flestir félagar sjái sér fært að mæta.  Veittar verða kaffiveitingar á fundinum.

 

Stjórn TFÍ 

 

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 9 af 11