|
Staða á tollasviði í Genf |
|
Þriðjudagur, 11. nóvember 2008 16:48 |
|
Félaginu hefur borist ábening um stöðu aðstoðarmanns á tollasviði hjá EFTA skrifstofunni í Genf væri laus til umsóknar. Rennur umsóknarfrestur út n.k. sunnudag 16. nóv. Er um að ræða spennandi og lærdómsríkt starf. Um er að ræða tímabundið starf frá 1. mars til 31. júlí 2009.
|
|
Nánar...
|
|
|
Kveðja frá norskum starfsbræðrum |
|
Mánudagur, 10. nóvember 2008 17:08 |
|
Tollvarðafélaginu hefur borist kveðja frá félögum okkar í Tollvarðafélagi Noregs (Norsk Tollforbund). Þar kemur fram hjá Fredrik Stotvig varaformanni, að fréttir um erfiða stöðu fjármála landsins hafi borist þeim. Er það þeirra von að þetta áfall komi ekki hart niður á félögum þeirra á Íslandi.
Fylgir hér með norska kveðjan auk svari formanns TFÍ.
|
|
Nánar...
|
|
Miðvikudagur, 05. nóvember 2008 02:25 |
|
Seinni hlutann í gær var undirritaður nýr kjarasamningur TFÍ og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs. Hækka laun um kr. 20.300 frá 1. nóvember. Er samningurinn í anda annara kjarasamninga sem gerðir hafa verið undanfarið. Gildir hann til 31. maí 2009. Verður samningurinn kynntur félagsmönnum nánar á fundum sem verða auglýstir sérstaklega. Að lokinni kynningu verður samningurinn borin undir atkvæði félagsmanna.
|
|
Föstudagur, 31. október 2008 16:12 |
|
Þriðji samningafundur var haldinn eftir hádegið í dag.
Fyrir liggur tilboð samninganefndar ríkisins um hækkun launatöflu um kr. 20.300.- sem er í takt við aðra kjarasamninga er gerðir hafa verið. Gert er ráð fyrir stuttum samningstíma eða sex mánuði. Ekki tókst að ljúka gerð samningsins í dag, en sammæltust aðilar um að hittast aftur á þriðjudag.
|
|
Miðvikudagur, 29. október 2008 21:13 |
|
Á fundi í dag sem haldinn var í húsakynnum ríkissáttasemjara í Borgartúni mættust samninganefndir TFÍ og ríkisins. Áfram voru haldið, málin rædd fram og til baka. Góður hugur er í mönnum en ekki náðist að ljúka gerð nýs kjarasamnings.
Ákveðið var að nefndirnar mundu hittast aftur á föstudag.
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 8 af 11 |