|
Miðvikudagur, 31. desember 2008 13:10 |
|
Um áramótin fellur öll tollgæsla landsins undir eina sameiginlega stjórn við breytingar á tollalögum. Er það einlæg von TFÍ að breytingin verði til þess að gera tollgæsluna hæfari til að takast á við ný verkefni í síbreytilegum heimi.
Stjórn TFÍ vill óska félagsmaönnum allra heilla á nýju ári og þakkar fyrir stuðning við stjórn á því ári sem er að líða.
|
|
|
Sunnudagur, 14. desember 2008 13:00 |
|
Á föstudag samþykkti Alþingi breytingar á tollalögum. Með þeim er allt landið gert að einu tollumdæmi. Mun tollstjórinn í Reykjvík fara með yfirstjórn þess í umboði fjármálaráðherra. Mun tollstjóri taka við réttindum og skyldum tollvarða er starfað hafa í umdæmum landsins.
Hér má sjá frumvarpið á vef Alþingis.
|
|
Fimmtudagur, 04. desember 2008 09:32 |
|
Í gær var lagt fram frumvarp til breytinga á tollalögum. Þar er lagt til að landið verði gert að einu tollaumdæomi. Mun embætti tollstjórans í Reykjavík verða embætti tollstjóra. Mun hið nýja embætti annast tollframkvæmd í landinu. Tekur embættið við réttindum og skyldum gagnvart tollvörðum sem starfa í Vestfjarðaumdæmi, Norðurlandsumdæmi, Austurlandsumdæmi nyrðra, Austurlandsumdæmi syðra, Suðurlandsumdæmi, Vestmannaeyjaumdæmi og Reykjanesumdæmi.
Hér er slóð inn á heimasíðu Alþingis.
|
|
Stjórnendanám Tollskólans lýkur. |
|
Mánudagur, 01. desember 2008 15:09 |
|
Í síðustu viku lauk tveggja missera námi Tollskólans, bar það heitið ,,Betri stjórnendur - Stjórnendaþjálfun fyrir Tollstjóraembættið. Annaðist Endurmenntun Háskóla Íslands námið. Hófst það í janúar s.l. Skiptist námið í níu flokka s.s. vinnusálfræði, mannauðsstjórnun, breytingastjórnun, samningatækni og lausn ágreinings, verkefnastjórnun, þjónustustjórnun, vinnuréttur og stjórnun og starf í teymum.
Þáttakendur voru rúmlega tuttugu talsins og komu þeir frá fimm tollembættum. Nám þetta er nýjung af hálfu Tollskólans. Mæltist námið vel fyrir meðal þáttakenda.  Nemendum var veitt viðurkenning í námsslok úr hendi Kristínar Jónsdóttur endurmenntunarstjóra Háskóla Íslands.
|
|
Nýr kjarasamningur TFÍ samþykktur. |
|
Mánudagur, 17. nóvember 2008 15:31 |
|
Nýr kjarasamningur TFÍ og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs frá 4. nóv. s.l. hefur verið samþykktur í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna. Alls kusu 80 sem gerir 72% þáttöku. Af þeim sem tóku afstöðu voru 73 samþykkir, 3 á móti og 4 atkvæði ógild.
Hefur Samninganefnd ríkisins verið tilkynnt um þessa niðurstöðu.
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 7 af 11 |