tfi-logo_400x100
   
Samningafundur nr. 2
Miðvikudagur, 02. september 2009 13:45

Í gær var haldinn annar fundur TFÍ og SNR.  Sem fyrr voru mál rædd frá ýmsum hliðum. 

Gert er ráð fyrir að næsti fundur verði að viku liðinni.

 
Fréttir af samningamálum.
Miðvikudagur, 26. ágúst 2009 18:07

Í gær stóð til að haldinn yrði samningafundur TFÍ og Samninganefndar ríkisins.  Til þess kom þó ekki því SNR óskaði eftir því að fundinum yrði frestað.

Stefnt er að því að næsti fundur verði haldinn 1. september.

 
Samningafundur í dag
Fimmtudagur, 20. ágúst 2009 23:47

Í dag var haldinn fyrsti samningafundur TFÍ og SNR - Samninganefndar ríkisins, eftir að samningar voru feldir í atkvæðagreiðslu félagsmanna.  Skiptust aðilar á hugmyndum sem gætu stuðlað gætu að gerð nýs samnings.

Næsti fundur verður á þriðjudag.

 
Úrslit kosninga.
Fimmtudagur, 13. ágúst 2009 21:46

Kjörnefnd TFÍ hefur birt niðurstöðu kosninga um nýjan kjarasamning félagsins sem undirritaður var 3. júlí s.l.

Á kjörskrá voru 115.

Alls greiddu 48 atkvæði, þ.e. 41,74%

 

Úrslit voru eftirfarandi:

 

  Fjöldi
 Hlutfall
 20  41,67%
 NEI  26  54,17%
 Skila auðu
 2  4,17%

 

 


 

 

 
Kosning um nýjan kjarasamning TFÍ
Þriðjudagur, 28. júlí 2009 18:33
 

Kæru félagar. 

Nú er hafin kosning um nýjan kjarasamning TFÍ og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs er undirritaður var 3. júlí s.l.

Kosningin fer fram rafrænt, þ.e. félagsmenn kjósa með því að ýta á valgluggan hér til hliðar.

 

Félagsmönnum TFÍ hefur verið sent bréf þar sem fram kemur fyrirkomulag kosningana, í bréfinu fylgir aðgangsorð sem félagsmaður notar til þess að nýta kosningaréttinn.  Hægt er að kjósa til og með 12. ágúst n.k.

 

 

 

 

 

 

 

pastarchives

KOSNINGAR UM KJARASAMNING TFÍ 

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 4 af 11