|
TFÍ styrkir Fjölskylduhjálp Íslands |
|
Þriðjudagur, 01. desember 2009 13:04 |
|
Stjórn TFÍ hefur ákveðið að styrkja Fjölskylduhjálp Íslands um kr. 150.000.- vegna þeirra fjölda styrktarbeiðna er samtökunum berast. Formaður TFÍ tilkynnti Ásgerði Flosadóttur forsvarsmanni Fjölskyluhjálparinnar um þennan styrk félagsins.
Vonandi sjá fleiri stéttarfélög sér fært að styrkja samtökin með sínu framlagi.
|
|
|
Miðvikudagur, 18. nóvember 2009 22:20 |
|
Stjórn TFÍ hefur fengið Jónas Hall f.v. yfirtollvörð til að annast samantekt sögubrota fyrir TFÍ. Félagið hefur í fórum sínum mikinn fróðleik um framgang félagsins allt frá stofnun þess 1935.
Væntir TFÍ mikils af störfum Jónasar, en hann starfaði mikið fyrir félagið. Hafði hann frumkvæði um að ráðist væri í ýmis verkefni sem voru stétt tollvarða til framdráttar.
|
|
Miðvikudagur, 18. nóvember 2009 21:52 |
|
Dráttur hefur orðið á úthlutun einkennisfatnaðar tollvarða. Nefnd sem er starfandi hefur það verkefni að kanna hagkvæmari og notkunarvænni fatnað. Auk fulltrúa tollstjóra hefur TFÍ sína fulltrúa í henni.
Er ekki að vænta breytinga á einkennisfatnaði fyrr en á komandi vormánuðum. Ef niðurstaðan verður í samræmi við væntingar má gera ráð fyrir að betri fatnaður standi tollvörðum til boða á nýju ári.
|
|
Þriðjudagur, 13. október 2009 10:29 |
|
Í dag verður haldinn fundur með samninganefndum TFÍ og samninganefndar ríkisins. Lítið er hægt að segja um mögulega niðurstöðu á fundinum, en vonandi þokast málið nær úrlausn.
|
|
Sunnudagur, 04. október 2009 20:37 |
|
Þann 21. September s.l. var fundur UFE haldinn í Brussel. Aðildarfélög UFE eru tollvarðafélög allflestra evrópulandanna.
|
|
Nánar...
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 3 af 11 |