tfi-logo_400x100
   
Gerðardómur
Miðvikudagur, 01. september 2010 10:59

Gerðardómur í kjaradeidlu TFÍ og fjármálarðaherra f.h. ríkissjóðs hefur birt úrskurð sinn.

Í dómsniðurstöðu kemur fram að tollvörðum verður greidd eingreiðsla kr. 78.000.-, er greidd verður með launagreiðslu 1. okt. n.k.  Einnig verður launatafla tollvarða og lögreglumanna sameinuð.  Auk þess áréttar gerðardómurinn samkomulag um breytt þrekpróf tollvarða.

 
Kjaramál
Þriðjudagur, 10. ágúst 2010 15:25

Eins og fram hefur komið var kjaradeilu TFÍ vísað í Gerðardóm á samningafundi með Ríkissáttasemjara þann 23. júní.

 

Fyrsti fundur Gerðardóms verður haldinn í húsnæði Ríkissáttasemjara á morgun 11. ágúst.

 

Fulltrúar TFÍ í Gerðardómi eru Ársæll Ársælsson aðalmaður og Ólafur Ingibersson til vara.  

 

Formaður dómsins hefur verið skipaður Magnús Jónsson fyrrverandi veðurstofustjóri og Geir Thorsteinsson til vara.

 

Fyrir hönd ríkisins hefur Katrín Ólafsdóttir verið skipuð og til vara Guðmundur H. Guðmundsson.

 

Úrskurði dómsins er að vænta eigi síðar en 31. ágúst.

 

Með kveðju

Stjórn TFÍ

 
Kjarasamningagerð
Miðvikudagur, 23. júní 2010 22:34

Í dag var enn haldinn fundur með samninganefnd TFÍ og fjármálaráðuneytisins.  Var þetta fimmti fundur sem haldinn er eftir að kjaradeilunni var vísað til ríkissáttasemjara.  Þrátt fyrir miklar umræður þokaðist deilan ekki í átt til lausnar.

Hefur deilunni nú verið vísað til gerðardóms í samræmi við samkomulag TFí og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs frá 5. júní 2002.  Þar er tilteknar starfsreglur fyrir gerðardóminn, en hann skipa þrír aðilar einn frá TFí, annar frá fjármálaráðuneyit og þriðji er skipaður af ríkissáttasemjara.  Skal dómurinn kveða um úrskurð innan 30 daga eftir að hann hefur verið skipaður.

 

 

 
Kjaramál
Föstudagur, 21. maí 2010 09:01

Á Miðvikudaginn 19.05.2010 fundaði samninganefnd Tollvarðafélags Íslands með samninganefnd Ríkisins í áheyrn ríkissáttasemjara.

Kjaradeilunni var vísað til sáttasemjara að hálfu TFÍ vegna lítils árangurs í kjaraviðræðum.

Samninganefnd TFÍ lagði fram sínar kröfur í kjaramálum og fást vonandi svör við þeim á næsta fundi.

Næsti fundur verður haldinn mánudaginn 31.05.2010.

 
Kjaramál
Þriðjudagur, 11. maí 2010 08:24

Ákveðið hefur verið að hálfu samninganefndar TFÍ að vísa kjaradeilu félagsins til Ríkissáttasemjara.

 

Á undanförnum mánuðum hefur ekki verið að finna mikinn samningsvilja að hálfu SNR og því hefur deilan staðið í stað.

 

Með kveðju

 

Stjórn TFÍ

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 11