tfi-logo_400x100
   
Aðalfundur Tollvarðafélags Íslands Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Mánudagur, 16. janúar 2012 08:39

Aðalfundur Tollvarðafélags Íslands Verður haldinn
föstudaginn 24.02.2012 í húsakynnum BSRB að Grettisgötu 89, jarðhæð.

Fundurinn mun hefjast kl. 18:00

Efni fundarins verða venjuleg aðalfundarstörf.

Boðið verður upp á sætaferðir frá Keflavík.

Stjórn TFÍ vonar að sjá sem flesta félagsmenn á fundinum.

 
Starfslokanámskeið BSRB Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Miðvikudagur, 04. janúar 2012 16:16

Námskeiðið verður haldið dagana 31. janúar og 2. febrúar 2012.

Námskeiðið verður frá kl. 16.30 til kl. 19.00 og er haldið í húsnæði BSRB Grettisgötu 89, 1. hæð.

Námskeiðið er frítt og er einkum ætlað þeim sem eru að nálgast starfslok eða eru nýlega hættir störfum og er opið öllum félagmönnum aðildarfélaga innan BSRB og mökum þeirra.

Skráning hefst 5. janúar 2012 á vef BSRB www.bsrb.is og í síma 525 8306.

Dagskrá:

Þriðjudagur 31. janúar
16.30: Ásta Arnardóttir frá Tryggingastofnun fjallar um almannatryggingakerfið
17.15: Kynning á sjálfboðaliðastarfi Rauða krossins
17.30: Kaffi.
17.45: Jóhann Ingi Gunnarsson sálfræðingur – Ár fullþroskans

Fimmtudagur 2. febrúar
16.30: Ágústa H. Gísladóttir og Páll Ólafsson frá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins og Þórdís Yngvadóttir frá Lífeyrissjóði starfsmanna sveitarfélaga fjalla um lífeyrismálin
17.30: Kaffi
17.45: Edda Björgvinsdóttir leikkona - Jákvæðni, húmor og hlýlegt viðmót

 
Kosningar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Miðvikudagur, 04. janúar 2012 09:27

Frá kjörstjórn TFÍ.

Kjörstjórn minnir tollverði á eftirfarandi greinar úr lögum Tollvarðafélags Íslands:

15. grein:
“Á því ári er hefur jafna tölu í ártali skal kjósa tvo stjórnarmenn og einn varastjórnarmann, þá skal einnig kjósa skoðunarmenn reikninga félagsins.”

17. grein:
“Það starfsárið, sem kosning skal fara fram, ber kjörstjórn að vekja athygli félagsmanna á væntanlegri kosningu, framboðsfresti og öðru, sem máli skiptir varðandi kosninguna, eigi síðar en 15. desember.”

20. grein:
“Fráfarandi formaður og aðrir stjórnarmenn eru alltaf í kjöri, nema þeir biðjist skriflega undan því til kjörstjórnar. Ákveði fráfarandi formaður eða aðrir stjórnarmenn að gefa ekki kost á sér til endurkjörs, skulu þeir tilkynna það til kjörstjórnar fyrir 15. janúar. Kjörstjórn getur þó fallist á afsögn komi hún fram síðar, ef sérstakar ástæður liggja til, þó ekki síðar en 31. janúar. Skal þá kjörstjórn ávallt auglýsa eftir uppástungum um menn í stjórn og varastjórn, svo og í stöður annarra trúnaðarmanna er kjósa skal. Frestur til að skila uppástungum til kjörstjórnar skal vera til 31. janúar. Komi ekki fram uppástungur um fleiri menn en kjósa á eru þeir sjálfkjörnir. Uppástungur skulu vera skriflegar og með samþykki viðkomandi. ”

Reykjavík 07.12. 2011
F.h. kjörstjórnar,
Ármann Kjartansson

 
Gjöf Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Föstudagur, 30. september 2011 16:19

Stjórn Tollvarðarfélags Íslands afhenti Njálu Sigurbjörgu Vídalín, starfsmanni embættis tollstjóra, gjöf sem þakkarvott fyrir óeigingjarna og þrotlausa vinnu við úthlutun nýs einkennisfatnaðar.

Á meðfylgjandi mynd sést hvar stjórnarmennirnir Baldur Höskuldsson og Baldvin Þórisson afhenda Njálu gjöfina.

 

 

 
Stuðningsyfirlýsing. Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Fimmtudagur, 29. september 2011 10:32
Tollvarðafélag Íslands lýsir yfir fullum stuðningi við kjarabaráttu Landsambands Lögreglumanna. Tollverðir hafa upplifað sömu óbilgirni frá ríkisvaldinu eins og aðrar starfstéttir sem ekki hafa verkfallsrétt. Of lengi hefur ríkisvaldið notfært sér veika samningsstöðu þessara embættismanna sem þó eiga að semja um sín kjör. Þessar stéttir hafa fáa möguleika á að verja kjör sín eins og önnur stéttafélög.
Þeir viðmiðunarsamningar sem teknir voru upp í kjölfar þess að verkfallsréttur var afnuminn eru ekki lengur til staðar
Úrskurður Gerðardóms í máli lögreglumanna lýsir best hversu vonlítil barátta þessara stétta er fyrir réttmætum leiðréttingum á kjörum.
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 2